Reynslan
Mikilvægasta reynslan og sú sem hefur þroskað mig mest er að finna takmörk mín, taka áskorunum og verða betri og víðsýnni einstaklingur með hverjum deginum, án þess að missa grunnkarakterinn. Húmor, einbeiting og fyrirgefning eru mikilvægustu vopnin mín í erfiðleikum (skyndiprófum lífsins) og einnig að gera mér grein fyrir því að það gengur ekki allt upp eins og ætlast er til í upphafi. Nauðsynlegt er að hafa plan B.
Ég hef mest lært af öðru fólki á öllum skeiðum lífs míns og hef mátað eiginleika þeirra í leit að réttum leiðum til að ná takmarki mínu hverju sinni. Með því að upplifa annað fólk og hlusta á það af einlægni, hef ég annars vegar lært að við erum jafn ólík og við erum mörg og hins vegar að það býr gott í öllum þótt við sýnum það á misjafnan hátt.
Stjórnunarskólinn, Dale Carnegie, er það námskeið sem hefur eflt mig mest en annars hef ég sótt fjölda ólíkra námskeiða, allt frá skrautskrift, myndmennt og nám fyrir ritara á lögmannstofum í viðskipta-ensku og skyndihjálp.