Tek að mér
Mér finnst verulega gaman að skrautskrifa, skreyta kerti, semja tækifærisvísur, prófarkalesa ýmsa texta (bæklinga, matseðla, heimasíður, skilaverkefni o.fl.), semja bréf og taka viðtöl við fólk. Hef verið að taka slíkt að mér gegn umsömdu gjaldi.
Ef þið vitið af einhverjum sem vilja njóta krafta minna, hafið endilega samband með því að fylla út “Hafa samband” formið á síðunni.